Leiðbeiningar fyrir byrjendur

Gervigreind
fyrir alla

Einfaldar leiðbeiningar til að nota gervigreind betur, í daglegu lífi, í vinnu og með skrám.


Claude · ChatGPT · Copilot

Nóvember 2026

Fyrir hvern er þetta?

Fyrir þig sem hefur áhuga á gervigreind en hefur hvorki tíma né áhuga á að kafa djúpt í tæknina. Þú þarft enga sérþekkingu.

Hér eru þrír stuttir leiðarvísar, einn fyrir hvert af algengustu gervigreindarverkfærunum. Hver þeirra er í tíu skrefum og hvert skref endar á stuttri æfingu, „Prófaðu núna“, sem þú getur gert strax. Fyrirmælin sem mælt er með að eiga tilbúin getur þú afritað með einum smelli.

Veldu þitt verkfæri

Byrjaðu á því verkfæri sem þú notar nú þegar, eða því sem vinnustaðurinn þinn býður upp á.

Af hverju þrjú verkfæri?

Fólk notar ólík verkfæri. Sumir fá Copilot í gegnum vinnuna, aðrir nota ChatGPT eða Claude heima. Í stað þess að velja eitt fyrir þig eru sömu tíu skrefin skrifuð fyrir hvert þeirra.

Svona er best að byrja

  1. Veldu leiðarvísinn fyrir verkfærið þitt hér að ofan.
  2. Lestu orðalistann fyrst. Hann tekur nokkrar mínútur og gerir allt annað auðveldara.
  3. Taktu eitt skref í einu. Skref 1–5 duga flestum. Skref 8–10 eru fyrir þau sem vilja ganga lengra.

Hafðu í huga

Gervigreind getur haft rangt fyrir sér og hljómað mjög örugg samt. Athugaðu það sem skiptir máli og settu aldrei lykilorð, bankaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar inn í spjall.

Verkfærin breytast hratt. Leiðbeiningarnar miðast við nóvember 2026. Ef eitthvað lítur öðruvísi út hjá þér, skoðaðu hjálparsíðu framleiðandans sem vísað er í neðst í hverjum leiðarvísi.